Upptaka frá kynningarfundi um umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
12.10.2026
Ferðamálastofa stóð fyrir upplýsingafundi fyrir væntanlega umsækjendur í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Fundurinn var haldinn síðastliðinn fimmtudag og er umsóknarfrestur til kl. 13 þriðjudaginn 27.október 2026.
Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Á fundinum var meðal annars farið yfir:
- Hverskonar verkefni eru styrkhæf og hver ekki.
- Umsóknarferlið og umsóknareyðublað.
- Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
- Hvernig er sótt um styrki úr sjóðnum?
Þá bárust einnig nokkrar spurningar frá þátttakendum sem svarað var í lok fundar.
Kynnar voru Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir og Snorri Valsson.
Upptöku frá fundinum má finna hér.