Fara í efni

Upptaka af kynningu á Framkvæmdasjóði ferðamannastaða haustið 2017 komin á vefinn

Starfsfólk Ferðamálastofu er nú á fundaferð um landið til að kynna Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Á fundunum er m.a. farið yfir:

  • Breytingar á sjóðnum vegna breyttra laga og reglugerðar.
  • Hverskonar verkefni eru styrkhæf og hver ekki.
  • Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
  • Umsóknarferlið og umsóknareyðublað.
  • Hvernig er sótt um styrki úr sjóðnum?

Upptöku frá fundi sem haldinn var á hótel KEA 10. október má nálgast hér.