Fara í efni

Uppsveitabrosið afhent í sjötta sinn

Uppsteitabros 2009
Uppsteitabros 2009

"Uppsveitabrosið" er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki í uppsveitum Árnessýslu til þeirra sem hafa lagt ferðaþjónustunni á svæðinu lið á jákvæðan uppbyggilegan hátt og stuðlað að samvinnu.

Hreinn Óskarsson skógarvörður fékk ?Uppsveitabrosið 2009? fyrir hönd Skógræktar ríkisins á Suðurlandi. Á myndinni er h nn með Ásborgu Arnþórsdóttur ferðamálafulltrúa í uppsveitum Árnessýslu.

Í rökstuðningi segir að skógarnir séu orðnir vinsælt útivistarsvæði allt árið um kring, jafnt fyrir heimamenn sem ferðamenn. Öll samvinna við Skógræktina hefur verið einstaklega góð í uppsveitunum. Haukadalsskógur og Þjórsárdalsskógur eru vinsæl útivistarsvæði og þar er unnið metnaðarfullt starf við uppbyggingu. Í skógunum eru m.a. merktir göngustígar og einnig sérhannaðir stígar fyrir hjólastóla.

Uppsveitabrosið sjálft er óáþreifanlegt, en því fylgir ávallt hlutur sem handverks- eða listamaður í Uppsveitum Árnessýslu býr til hverju sinni. Að þessu sinni er það listakonan Anna Magnúsdóttir á Flúðum og verkið er máluð mynd af tré í haustlitum, sem ber heitið ?Úr sálargarðinum ? Það er vel við hæfi að færa Skógræktinni slíkt tré.
Markmiðið með ?Uppsteinabrosinu? er að senda út jákvæð skilaboð og vekja athygli á því sem vel er gert. Hugmyndin kviknaði í stefnumótunarvinnu 2003 og er þetta í sjötta sinn sem brosið er afhent.