Fara í efni

Uppsveitabrosið afhent í níunda sinn

Uppsveitabrosið 2012
Uppsveitabrosið 2012

Uppsveitabrosið var afhent í níunda sinn á fundi á Hótel Heklu á Skeiðum í gær þar sem sveitarstjórnarfólk í Uppsveitum Árnessýslu og Flóa komu saman ásamt ferðamálafulltrúa til að ræða um ferðamál og horfa fram á veginn.

Sveitarstjórnarmenn fjölmenntu og sérstakir gestir fundarins voru þau Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Sveinn Rúnar Traustason umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu og Áslaug Briem starfsmaður nýja gæða- og umhverfiskerfisins VAKANS.

Um uppsveitabrosið
Uppsveitabrosið er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki. Bros frá Uppsveitunum til þeirra sem hafa lagt ferðaþjónustunni á svæðinu lið á jákvæðan uppbyggilegan hátt og stuðlað að samvinnu. Markmiðið er að senda út jákvæð skilaboð og vekja athygli á því sem vel er gert.

Góð samvinna og tengsl við ferðaþjónustu
Að þessu sinni var það minjavörður Suðurlands Uggi Ævarsson sem hlaut Uppsveitabrosið fyrir einstaklega góða samvinnu. Samvinna Uppsveitanna við Fornleifavernd ríkisins hefur verið til mikillar fyrirmyndar um árabil og var það sérstakt fagnaðarefni að fá minjavörð á Suðurland. Ferðaþjónusta, menning, saga og fornminjar tengjast órjúfanlegum böndum og þess vegna er mjög mikilvægt að gott samstarf sé milli faggreina. Það hefur verið ánægjulegt að vinna með starfsfólki Fornleifaverndarinnar og Minjaverði Suðurlands að uppbyggingu og verkefnum í Uppsveitum Árnessýslu. Spennandi tímar eru einnig framundan einkum í Þjórsárdal þar sem hugmyndasamkeppni um heildarmynd minjasvæðisins í Þjórsárdal hlaut nýlega styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Viðurkenning eftir listamann af svæðinu
Uppsveitabrosinu sem er óáþreyfanlegt fylgir alltaf hlutur unninn af listamanni í Uppsveitunum og að þessu sinni er það krítarteikning eftir myndlistarkonuna Sigulínu Kristinsdóttur sem á galleríið „Myndlist í hesthúsi“ í Reykholti í Biskupstungum.

Mynd:
Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveitanna, afhendir Ugga Ævarssyni uppsveitabrosið 2012.