Fara í efni

Upplýsingum safnað um vetrarþjónustu við "campera" / húsbíla

Húsbíll að vetriVeruleg aukning hefur orðið á útleigu á minni húsbílum eða „camperum“ á undaförnum misserum. Þá hefur það einnig gerst að leigutímabil slíkra bíla hefur lengst og má nú sjá þá á ferðinni nánast allt árið. Ferðamálastofa er nú að safna upplýsingum um þá aðila sem tilbúnir eru að veita þessum ferðalöngum þjónustu yfir vetrartímann.

Lagt þar sem bannað er

Flestir leigjenda þessara bíla fara að settum reglum og notfæra sér tjaldsvæðin á sumrin til að leggja á yfir nótt, því miður eru þó of mörg dæmi um að þeim sé lagt þar sem ekki er heimild til. Síðastliðið haust tóku gildi ný náttúruverndarlög þar sem sérstaklega er tekið fram í 22. gr. að „Utan þéttbýlis skal leita leyfis landeigenda eða annars rétthafa ef nota á tjaldvagn, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annan sambærilegan búnað utan skipulagðra tjaldsvæða“ Þá má einnig finna í lögreglusamþykktum margra sveitarfélaga svipað bann, þ.e. að bannað sé að gista í bílum utan skipulagðra svæða.

Möguleiki á viðbótartekjum

Nú er það svo að flest tjaldsvæði eru einungis opin yfir sumarið og því í fá hús að venda fyrir þá sem eru á ferðinni á umræddum bílum utan sumars. Ætla má að nokkur hundruð bílar séu í leigu utan háannar og að þar sé hægt að verða sé út um töluverðar viðbótatekjur fyrir þá sem eru með annarskonar þjónustu og geta boðið þessum gestum afnot af t.d. bílastæðum og salerni.

Grunnur yfir þjónustuaðila

Ferðamálastofa hyggur á útgáfu á rafrænum grunni yfir þá ferðaþjónustuaðila sem bjóða húsbíla/campera velkomna frá 15. Sept – 15. maí. Biðjum við þá hina sömu að senda upplýsingar á kari@ferdamalastofa.is fyrir 30. ágúst næstkomandi.