Fara í efni

Upplýsingar vegna rekstrarstöðvunar WOW Air

Sýnum samstöðu í erfiðri stöðu

WOW AIR hefur hætt starfsemi og hér að neðan er að finna mikilvægar upplýsingar til farþega og ferðaþjónustuaðila. Í þessari erfiðu stöðu vill Ferðamálastofa hvetja ferðaþjónustuaðila til að aðstoða eftir fremsta megni þá ferðalanga sem lenda í vandræðum, hjálpa þeim við að afla upplýsinga og almennt sýna greiðvikni og sanngirni í hvívetna.

Hvernig komast farþegar á áfangastað?

Hafi farþegi keypt stakan flugmiða verður hann sjálfur að koma sér heim og á eigin kostnað. Hluti af viðbúnaðaráætlun stjórnvalda er er virkja svokölluð björgunarfargjöld þar sem önnur flugfélög stíga inn og bjóða farþegum WOW sem þurfa að komast á áfangað fargjöld á lægra verði. Þegar þetta er skrifað hafa flugfélögin Icelandair, Easyjet, Norwegian og Wizz air boðið slík fargjöld og fleiri gætu bæst við. Misjafnt er eftir flugfélögum hvað tilboðið stendur lengi en síðasti dagur til að bóka þau er á tímabilinu 7.-11. apríl, eftir flugfélögum.

Nánari upplýsingar eru á vef Samgöngustofu og eru þær uppfærðar jafn óðum.

Réttarstaða flugfarþega

Réttarstaða flugfarþega er ólík eftir því hvort flugið er hluti af pakkaferð eða hvort keyptur hefur verið stakur flugmiði.

Þeir sem keypta hafa staka flugmiða og greitt með debit- eða kreditkorti er bent á að hafa samband við sinn viðskiptabanka eða greiðslukortafyrirtæki. Flest fjármálafyrirtæki hafa þegar birt upplýsingar varðandi rekstarstöðvun WOW á vefjum sínum og hvert fólk á að snúa sér. 

Sé flug hluti af pakkaferð ber seljandi pakkaferðar ábyrgð á að koma farþegum sínum á áfangastað og til baka aftur. Þeim sem keypt hafa pakkaferð eða eru nú þegar í pakkaferð, og flughluti ferðarinnar er með WOW, ber að snúa sér til seljanda pakkaferðarinnar varðandi frekari upplýsingar.
Þeir sem keypt hafa pakkaferð beint af WOW-travel (ferðaskrifstofu í eigu WOW Air) geta haft samband við Ferðamálastofu í gegnum netfangið mail@ferdamalastofa.is

Réttur seljanda pakkaferðar

Seljandi pakkaferðar, sem útvega þarf farþegum sínum annað flug til að uppfylla skyldur sínar, getur átt almenna kröfu í þrotabú flugfélags komi til gjaldþrots þess. Hafi seljandi pakkaferðar keypt flughluta ferðarinnar með greiðslukorti getur hann kannað rétt sinn hjá sínu greiðslukortafyrirtæki.

Viðbragðsáætlun Ferðamálastofu

Ferðamálastofa hefur virkjað viðbragðsáætlun vegna gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar seljenda pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar og stöðu viðskiptavina þeirra. Í áætluninni er farið yfir tryggingaskyldu seljanda og hvað í henni flest, hvað þeir sem keypt hafa pakkaferð af félagi sem fer í þrot þurfa að gera til að fá endurgreitt og almennt um meðferð mála þegar félag sem selt hefur pakkaferð eða samtengda ferðatilhögun fer í þrot. Þannig mun Ferðamálastofa afla upplýsinga um ferð, stöðu hennar og farþega, leitar samvinnu við flugfélög og tekur ákvörðun um heimflutning farþega ef við á. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru á vef Ferðamálastofu og í frétt á vef Samgöngustofu sem uppfærð er jafn óðum.

Upplýsingar á ensku

Á vef Samgöngustofu er að finna upplýsingar á ensku og eru þær uppfærðar jafn óðum og nýjar upplýsingar berast.