Fara í efni

Unnur Kendall Georgsson látin

Úr timarit.is
Úr timarit.is

Unnur Kendall Georgsson, fyrrverandi forstöðukona skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands í Bandaríkjunum, lést á sjúkrahúsi í Florída í liðinni viku.

Unnur veitti skrifstofunni forstöðu í áratug, frá 1980-1990. Hún var eini starfskrafturinn þar og sinnti öllu því sem laut að almennum kynningar- og upplýsingamálum í Norður-Ameríku. Meðfylgjandi mynd er úr tímaritinu Lögberg-Heimskringlu frá árinu 1980, þegar tekið var viðtal við Unni í tilefni ráðningar hennar. Greinina í heild má lesa hér á tíamrit.is