Fara í efni

Umsagnir og mikilvægi Tripadvisor

„Mikilvægi Tripadvisor fyrir ferðaþjónustufyrirtæki er alveg gríðarlegt. Því er er nauðsynlegt að fyrirtæki taki Tripadvisor alvarlega og sinni skráningunni sinni þar af kostgæfni.“ Þetta segir Sunna Þórðardóttir hjá ráðgjafafyrirtækinu Ferðavefjum en hún deilir fjölmörgum gagnlegum ráðum tengdum Tripadvisor í nýjasta þættinum af Ferðalausnir – stafræn tækifæri.

Öflugt markaðstól

Tripadvisor er í dag langstærsti umsagnavefur í ferðaþjónustu sem gefur honum mikið vægi sem markaðstól. Að sögn Sunnu fær hann um 350 milljón einstakar heimsóknir í hverjum mánuði og þar hefur fólk skrifað 320 milljón umsagnir um upplifun hjá um 4 milljónum ferðaþjónustufyrirtækja um allan heim. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að umsögn á Tripadvisor vegur þyngra þegar kemur að ákvörðunartöku fólks heldur en t.d. persónuleg meðmæli, ferðablogg og leiðarvísar.

Tripadvisor skref fyrir skref

Í myndbandinu byrjar Sunna á að fara yfir umsagnir almennt, tölfræði tengda umsögnum og mikilvægi þeirra. Því næst fjallar hún um Tripadvisor sem markaðstól og af hverju Tripadvisor skiptir máli. Þá rennir hún í gegnum skráningarferlið skref fyrir skref. Í lokin fer hún í gegnum góðar og slæmar venjur á Tripadvisor, hvað á að leggja áherslu á og hvað ber að varast.

Ljóst er að margir geta haft gagn af þeim góðu ráðum sem Sunna hefur fram að færa. Horfa má á myndbandið hér að neðan.