Fara í efni

Umhverfisverðlaun 2014 - óskað eftir tilnefningum

©arctic-images.com
©arctic-images.com

Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2014. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða aðilum sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?

Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta, geta komið til greina. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.

Hvernig er tilnefnt?

Aðilar geta tilnefnt hvort sem er sjálfa sig eða önnur fyrirtæki/félög. Fylla þarf út einfalt form hér á vefnum en þar kemur fram eftir hverju er leitað og hvaða aðtriði sem þurfa að vera í lagi þegar ferðaþjónustuaðilar eru tilnefndir. Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 12:00 þann 16. október en verðlaunin verða afhent á Ferðamálaþingi 2014 í Hörpu 29. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Ferðamálastofu, Björn Jóhannsson, bjorn@ferdamalastofa.is