Fara í efni

Umhverfisáhrif ferðalaga

Ferðaþjónusta bænda
Ferðaþjónusta bænda

Umhverfisdagur Farfugla verður haldinn 30. október næstkomandi. Yfirskrift hans er: Umhverfisáhrif ferðalaga - Hvernig getum við dregið úr neikvæðum áhrifum?.

Í kynningu á deginum segir meðal annars: "Heimurinn með allri sinni fegurð og framandleika hvetur okkur til að leggja land undir fót, en um leið mörkum við spor í umhverfið sem erfitt er að útmá ? eða hvað? Á Umhverfisdegi Farfugla verður fjallað um þessa þversögn sem ferðalangar þurfa að kljást við og leiðir sem fara má til að draga úr þeim áhrifum sem ferðalög hafa á náttúruna sem er okkur  svo hugleikin." Umhverfisdagur Farfugla verður haldinn í Kornhlöðunni, Bankastræti 2 í Reykjavík, kl. 13:30-17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Dagskrá:

13:30 ?13:45 Fundarsetning
Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Farfugla.

13:45 ? 14:30 Hvernig getum við dregið úr umhverfisáhrifum ferðalaga?
Hulda Steingrímsdóttir hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta ræðir umhverfisáhrif
ferðalaga og hvað við getum gert til að draga úr þeim.

14:30 ? 15:00 Innsýn í starf á Farfuglaheimilinu í Laugardal
Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri segir frá umhverfisstarfi á Svansvottuðum
gististað.

15:00 ? 15:30 Innsýn í starf Hópbíla
Pálmar Sigurðsson skrifstofu- og starfsmannastjóri segir frá umhverfisstarfi
innan hópbifreiðafyrirtækis.

15:20 ? 15:50 Kaffihlé

15:50 ? 16:10 Meðal hirðingja í Mongólíu ? Ferðasaga í máli og myndum
Ásta Kristín Þorsteinsdóttir segir frá stuttri dvöl hjá hirðingjum og
kynnum af sjálfbærri ferðaþjónustu í Mongólíu.

16:10 ? 16:40 Innsýn í starf Íslenskra fjallaleiðsögumanna
Jón Gauti Jónsson fjallaleiðsögumaður segir frá umhverfisstarfi innan
afþreyingarfyrirtækis.

16:40 ? 17:00 Á kajak um Jökulfirði ? Ferðasaga í máli og myndum
Valdimar Harðarson Steffensen segir frá nokkurra daga kajakferð um
eyðibyggð með allan farangur meðferðis.

17:00 Fundarslit

Dagskrá sem PDF til útprentunar:
Umhverfisdagur Farfugla  2009