Um 2.000 viðskiptavinir Tango Travel og Komdu út fá endurgreitt úr Ferðatryggingasjóði
Í vikunni var byrjað að endurgreiða viðskiptavinum ferðaskrifstofanna Tango Travel og Komdu út, en ferðaskrifstofuleyfi félaganna voru felld niður í desember síðastliðnum.
Ferðatryggingasjóði bárust 196 kröfur vegna Komdu út ehf. og 284 kröfur vegna Tango Travel ehf. en ógjaldfærni félaganna hafði áhrif á ferðaáætlanir tæplega 2.000 manns. Reiknað er með að endurgreiðslum verði lokið á næstu 2-3 vikum.
Bæði Tangó Travel ehf. og Komdu út ehf. voru með útgefin ferðaskrifstofuleyfi og voru aðilar að Ferðatryggingasjóði.
„Ferðatryggingasjóður er sameiginlegur sjóður ferðaskrifstofa sem starfa með leyfi á Íslandi og er ætlað að tryggja að ferðamenn njóti verndar ef ferðaskrifstofa getur ekki staðið við skuldbindingar sínar“ segir Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri.
„Þegar slík staða kemur upp greiðir sjóðurinn kröfur ferðamanna en gerir síðan endurkröfu í tryggingu viðkomandi ferðaskrifstofu. Sjóðurinn er þannig mikilvægur hluti af neytendavernd á ferðamarkaði og tryggir að þeir sem kaupa pakkaferðir hjá leyfisskyldum ferðaskrifstofum njóti verndar ef rekstur þeirra bregst,“ Bætir Arnar Már við.
Mynd: Bingqi Huang á Unsplash