Fara í efni

Úlfljótsvatn fyrsta tjaldsvæðið og hostelið í Vakann

Úlfljótsvatn í Vakann

Mynd: Glaðir starfsmenn Úlfljótsvatns við afhendinguna.

Útilífsmiðstöðin Úlfljótsvatn er nýjasti liðsmaður Vakans. Nýverið bættust við gæðaviðmið fyrir tjaldsvæði og hostel í Vakann og Úlfljótsvatn er fyrst allra að hljóta þær viðurkenningar. Skátar – til hamingju!

Kjarnastarfsemi Úlfljótsvatns snýst um að bjóða skátum, nemendum og öðrum æskulýðshópum vettvang fyrir ævintýri og fræðslu. „Samhliða því meginmarkmiði okkar höfum við undanfarin ár í auknum mæli opnað staðinn fyrir almenningi og góð dæmi um það eru fjölskyldutjaldsvæðið okkar og hostelið, sem bæði styðja við kjarnastarfsemi okkar,“ segir Guðmundur Finnbogason, framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns.

„Við leggjum áherslu á að bjóða jákvæða og spennandi upplifun í öruggu umhverfi. Þetta gerum við til dæmis með spennandi afþreyingu fyrir gesti um helgar, en líka með því að bjóða sérsniðna dagskrá fyrir hópa, bæði íslenska og erlenda. Í því samhengi njótum við líka góðs samstarfs við marga ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi.

Það er okkur gríðarlega mikilvægt að gestir okkar upplifi sig velkomna og örugga. Markmið Vakans falla því vel að okkar markmiðum og innleiðingarferlið hefur reynst okkur gagnlegt við að festa í form ferla og starfshætti,“ segir Guðmundur.