Fara í efni

Tvö verkefni fá hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu

Heilsuverðlaun
Heilsuverðlaun

Í dag afhenti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra tvenn hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu. Hvor verðlaun eru að upphæð ein milljón króna og eru þau veitt fyrir áhugaverða heilsuferðapakka sem ætlaðir eru erlendum ferðamönnum.

Verðlaunaverkefnin
Að frumkvæmiði iðnaðarráðherra var auglýst eftir umsóknum fyrir verðlaunin og bárust 23 tillögur frá 20 aðilum. Eftir vandlega yfirferð varð niðurstaða dómnefndar einróma um að mæla með að annarsvegar:
Hreyfistjórn efh. í samvinnu við Breiðu bökin ehf., Fjallamenn efh. og Icelandair Hótel Hamar fyrir verkefnið „Why not treat your backpain in spectacular surroundings“.  
Og hinsvegar Bláa lónið í samvinnu við Icelandair, Kynnisferðir og Hreyfingu fyrir verkefnið „Blue Lagoon Psoriasis meðferð – ný intensive meðferð“.

Skilyrði sem sett voru
Verðlaunahafarnir þurftu að uppfylla sjö skilyrði:
1. Þrír eða fleiri aðilar/fyrirtæki koma að heilsuferðinni og skal nafn og hlutverk hvers og eins skilgreint nákvæmlega á umsóknareyðublaðinu.
2. Ferðin sé ætluð erlendum vel skilgreindum markhópum.
3. Heilsuferðirnar verði metna út frá nýnæmi og framtíðarmöguleikum þeirra.
4. Heilsuferðin sé amk. 3 sólarhringar og sé í boði utan háannatíma.
5. Heilsuferðin falli að skilgreiningu á vellíðunar- eða heilsuferðaþjónustu*
6. Tilgangur ferðarinnar sé að efla heilsu viðskiptavinar.
7. Ávinningur af ferðinni sé skilgreindur.

Sem fyrr segir bárust 23 tillögur. Fram kom hjá dómnefnd að margar af þessum tillögum lýsa hugmyndaauðgi og ákveðinni nýsköpun en þyrftu í allnokkrum  tilfellum betri útfærslu og meiri ígrundun.

Nánar um verkefnin

  • Hreyfistjórn ehf. í samvinnu við Breiðu bökin ehf. og Fjallamenn efh. og Icelandair Hótel Hamar: „Why not treat your backpain in spectacular surroundings“.
    Umsögn dómnefndar: Verkefnið fær hæstu einkun skv. matsþáttum. Í verkefninu er notuð þekkingaryfirfærsla og íslensk nýsköpun til að búa til áhugaverða og nýja afurð í ferðaþjónustu þar sem fólki er boðið upp á greiningu, meðferð og þjálfun við mjóbaksvandamálum. Talið er að slík vandamál herji á um 80% vesturlandabúa einhverntímann á lífsleiðinni og stór hluti þeirra endar með viðvarandi vandamál með tilheyrandi óþægindum.   Ferðin er þannig uppbyggð að gestirnir koma til með að gista á Hótel Hamri í þægilegu umhverfi þar sem greining, þjálfun og fræðsla fer fram undir handleiðslu  sér hæfðra starfsmanna Hreyfistjórnunar ehf. og Breiðu baka ehf. Þá býðst getum að nýta sér fjölbreytta afþreyingu sem í boði er á svæðinu og munu Fjallamenn ehf. sjá um að skipuleggja þann þátt feðarinnar.
  • Bláa lónið í samvinnu við Icelandair, Kynnisferðir og Hreyfingu: „Blue Lagoon Psoriasis meðferð – ný intensive meðferð“.
    Umsögn dómnefndar: Verkefnið er vel skilgreint þó svo að verkefnið sé ekki nýtt af nálinni nema að hluta til þá fær verkefnið eina hæstu einkun skv. matsþáttum. Það hefur sýnt sig í áranna rás að psoriasis meðferð í Bláa Lóninu skilar verulegum árangri og er enn í stöðugri þróun og byggir auk þess á rannsóknum og reynslu fjölda einstaklinga. Hin nýja „intensive-meðferð“ miðar að því að stytta hefðbundna psoriasis meðferð um helming, eða í 1-2 vikur, en ná þó sama árangri. Er þetta í samræmi við óskir gesta erlendis frá sem sótt hafa hefðbundna meðferð. Nálgun meðferðarinnar er heildstæð og felur m.a. í sér ráðgjöf um mataræði, hreyfingu og boð um kynnisferðir. Verkefnið er sett fram sem hágæðaferð þar sem viðskiptavinir upplifi margt af því besta sem heilsulandið Ísland hefur upp á að bjóða.


Aðstandendur verkefnanna tveggja með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Grímur Sæmundsson og Dagný Pétursdóttir frá Bláa lóninu, Þórarinn Þór frá Kynnisferðum, Hjörtur Árnason og Unnur Pétursdóttir frá Hótel Hamri, Ólöf Einarsdóttir frá Fjallamönnum, Einar Einarsson frá Hreyfistjórn ehf. og Katrín Júlíusdóttir, ráðherra.