Fara í efni

Tveir af hverjum þremur miðum Flugfélags Íslands seldir á Netinu

Flugvel
Flugvel

Salan á Netinu hjá Flugfélagi Íslands vex enn jafnt og þétt og eru nú um 67% af farmiðum félagsins keyptir beint þar. Þetta kemur fram í frétt af vef félagsins.

Í fréttinni kemur fram að nú stefnir í að heildarsala á Netinu verði ekki undir 1,3 milljörðum króna á þessu ári og hefur vaxið um rúmlega 30% frá fyrra ári. "Við stefnum enn að aukinni sölu á Netinu, þar sem þessi sala er til mikils hægðarauka, bæði fyrir viðskiptavini og félagið. Nú á næstu vikum mun Flugfélagið taka í notkun nýja uppfærslu á bókunarkerfi sínu og mun það væntanlega auka enn möguleika á sölu á Netinu," segir á vef Flugfélags Íslands.