Fara í efni

Tango Travel ehf. – Kröfulýsingafrestur til 15. febrúar

Tango Travel ehf.  – Kröfulýsingafrestur til 15. febrúar

Við minnum á að þann 15. febrúar næstkomandi rennur út frestur til að senda inn kröfur til Ferðatryggingasjóðs vegna niðurfellingar á ferðaskrifstofuleyfi Tango Travel ehf. Ferðaskrifstofuleyfi félagsins var fellt niður frá og með 9. desember 2025 þar sem félagið hafði lýst yfir ógjaldfærni og lagt fram gögn því til stuðnings.

 

Þeir ferðamenn sem telja sig eiga kröfur á Tango Travel vegna pakkaferðar sem ekki hafi verið framkvæmd í samræmi við samning, þurfa að skila kröfum sínum fyrir þann tíma í gegnum vefgátt island.is. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, greiðslukvittanir með nafni greiðanda og viðtakanda.

 

Nánari upplýsingar