Fara í efni

Sýningunum MATUR 2008 ásamt Ferða-og Golfsýningunni 2008 er frestað!

ferðasýning 2007
ferðasýning 2007

Ákveðið hefur verið að fresta framkvæmd sýninganna Matur 2008 og Ferða og Golfsýningarinnar 2008. Fram kemur í frétt á heimasíðu Íslandsmóta, framkvæmdaaðila sýninganna, að ákvörðunin sé tekin í samráði við skipuleggjendur og samstarfsaðila í ljósi núverandi markaðsaðstæðna hér á landi og væntinga þeirra fyrirtækja sem tekið hafa þátt í sýningunum á undanförnum árum.

Sýningarhald sem hluti markaðs og kynningarstarfs er þó eftir sem áður mikilvægur þáttur í markaðsstarfi fyrirtækjanna og til þess að koma til móts við þessar þarfir er nauðsynlegt að endurmeta og breyta áherslum í sýningarhaldinu, segir á fréttinni.

Matur 2008:
Fyrirhugað er að sýningin Matur verði haldin í byrjun vetrar og þá með öðrum formerkjum og með nýjum áherslum en verið hafa hingað til. Nýjar upplýsingar um sýninguna og annað fyrirkomulag í tengslum við hana verður komið á framfæri á vormánuðum.

Ferðasýningin og Golf 2008:
Ferðatorg sem nýtur stuðnings Ferðamálasamtaka Íslands mun einnig frestast. Fyrirhugað er að efna til Ferðatorgs í öðru samhengi þegar nær dregur sumri.