Fara í efni

?Suðurland bragðast best?

Skógarfoss
Skógarfoss

Næstkomandi miðvikudag, 30 janúar, verður á Hótel Selfossi haldið málþing með yfirskriftinni ?Suðurland bragðast best?. Markmið þess er að vekja athygli á framboði og nýsköpun í matvælaframleiðslu á Suðurlandi og að hvetja Sunnlendinga, ekki síst þá sem stunda veitingarekstur og ferðaþjónustu, til þess að nýta matvæli úr heimabyggð.

Kynnt verða fjölbreytt verkefni einstaklinga og samstarfshópa í því skyni að miðla af reynslu þeirra sem eru að framleiða og markaðsetja matvæli víða um land.
Má þar nefna verkefnin Beint frá býli, Matarkista Skagafjarðar, Stefnumót hönnuða og bænda Vörumerkjastjórnun, Heimaframleiðsla o.fl.

Í tengslum við málþingið verður sýningarsvæði þar sem matvælaframleiðendur á Suðurlandi kynna vörur sínar fyrir gestum. Þess er vænst að málþingið ásamt kynningunum varpi ljósi á það sem er á döfinni í matvælaframleiðslu, efli tengsl milli framleiðenda og neytenda og verði hvatning fyrir frumkvöðla til nýsköpunar.

Vaxtasamningur Suðurlands og Vestmannaeyja hefur forystu um málþingið.
Undirbúning annast  þær Sædís Íva Elíasdóttir og Steingerðar Hreinsdóttir, verkefnastjórar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu.

Dagskrá:

? 13:00 ? 13:10: Málþingstjóri opnar og setur þingið
? 13:10 ? 13:30: Svanhildur Pálsdóttir, Matarkista Skagafjarðar
? 13:30 ? 13:50: Friðrik Valur Karlsson, Klasamyndun í Eyjafirðinum
? 13:50 ? 14:00: Hildur Magnúsdóttir, Verslunin Borg, Hvað vilja neytendur?
? 14:00 ? 14:20: Friðrik Eysteinsson, sölu- og markaðsstjóri SS ,,Mörkun? vörumerkjastjórnun í matvælaframleiðslu

? 14:20 ? 14:40: Kaffi

? 14:40 ? 15:00: Vilhjálmur Vernharðsson frá Möðrudal, heimaframleiðsla reynslusaga
? 15:00 - 15:20: Gunnlaugur Karlsson ? Markaðssetning í íslenskri garðyrkju
? 15:20 ? 15:40: Ólöf Hallgrímsdóttir, Verkefnið Beint frá Býli
? 15: 40 - 16:20: Brynhildur Pálsdóttir/Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir - Listaháskólinn, Stefnumót hönnuða og bænda
? 16:20 ? 16:30: Berglind Hallgrímsdóttir, Samantekt og kynning á Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja í tengslum við matarklasa

Eftir málþingið verður boðið upp á kynningar á sunnlenskri matvælaframleiðslu
Málþingsstjóri er Ingi Þór Jónsson