Fara í efni

Styrkur frá NATA

NATA logo
NATA logo

Styrkur frá NATA
Samstarf á sviði ferðamála milli Grænlands, Íslands og Færeyja

Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta. 

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:

Þróun ferða
Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (shortbreak) o.s.frv.

Markaðssetning í ferðaþjónustu og greining sóknartækifæra
Alþjóðleg átaksverkefni á sviði ferðaþjónustu.

Menntun
Faglegar námsferðir, menntun á sviði ferðamála,
dvöl til að kynna sér aðstæður.

Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða
ensku og sendast til:

NATA c/o
Ferðamálastofa
Lækjargata 3,
101 Reykjavík

Lokafrestur til að senda umsóknir er til 20. ágúst 2009
Umsóknareyðublað má nálgast á vef Ferðamálastofu,
www.ferdamalastofa.is

-Hægrismellið á tenglana hér fyrir neðan og veljið "Save Target As" til að vista umsóknareyðublöðin á eigin tölvu.

Fyrirspurnir varðandi vinnslu umsóknar sendist til:
sigrun@icetourist.is

NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta.