Fara í efni

Styrkir frá NATA vegna samstarfs við Grænland og Færeyjar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.

Umsóknafrestur vegna næstu úthlutunar rennur út á miðnætti 27. febrúar 2023. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.

Styrkir til tvenns konar verkefna

Hægt er að sækja um styrki til tvenns konar verkefna:

  • Þróunar- og markaðsverkefna í ferðaþjónustu
  • Kynnis- og námsferða

Stjórn NATA mun árið 2023 líta sérstaklega til umsókna þar sem áhersla er á endurræsingu ferðaþjónustunnar eftir Covid-19, sjálfbærni og stafræna væðingu í ferðaþjónustu.

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk. Skulu verkefnin fela í sér samstarf milli aðila í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Dæmi um verkefni sem NATA styrkir eru: 

  • Nýsköpunar- og vöruþróunarverkefni
  • Sameiginleg markaðssetningarverkefni
  • Þekkingarheimsóknir og miðlun gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila
  • Gæða- og umhverfismál innan ferðaþjónustunnar

Hámarksstyrkur verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar.

Styrkir vegna kynnis- og námsferða

Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 2.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og 1.000 danskar krónur vegna ferða á milli Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 27. febrúar 2023. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 30. mars 2023. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 30. mars 2023 eru ekki styrkhæf.

Næsti umsóknarfrestur 

Um er að ræða fyrri úthlutun af tveimur á árinu 2023. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna seinni úthlutunar 2023 verði í ágúst 2023 en það verður auglýst sérstaklega síðar.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um fyrri úthlutanir NATA má sjá á hér.

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Erla Weihe Johannesen – nata@vinnuframi.fo