Fara í efni

Styrkir til skipulags og hönnunar áfangastaða fyrir ferðamenn

Skipulag og hönnun áfangastaða
Skipulag og hönnun áfangastaða

Ferðamálastofa auglýsir eftir umsóknum um styrki til skipulags á áfangastöðum fyrir ferðamenn sem ekki eru í eigu eða umsjón ríkisins.  Um er að ræða 3 - 4 styrki að upphæð allt að kr. 3 milljónir.  Um getur verið að ræða þarfagreiningu, stefnumótunar-, skipulags- og hönnunarvinnu. Athugið ekki er um framkvæmdastyrk að ræða. 

Lögð er áhersla á heildaryfirbragð áfangastaðar þar sem staðarvitund og vistvæn nálgun eru sett í öndvegi. 

Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2012. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar. Styrkþegar verða kynntir á Ferðamálaþingi 22. nóvember 2012.

Við undirbúning umsóknar skal hafa eftirfarandi í huga:

  1. Afurð verkefnisins skal vera heildarskipulag, hönnun og framtíðarsýn fyrir áfangastaðinn. 
  2. Skilyrt er að um sé að ræða áfangastaði sem eru opnir almenningi og að aðgengi allra verði tryggt sem frekast er kostur.
  3. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 75% heildarkostnaðar. 
  4. Við yfirferð umsókna er tekið mið af markmiðum ferðamálaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiðum, nýnæmi o.fl. 
  5. Við hönnunina skal horft til áherslna Ferðamálastofu er varða skipulag og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga sem koma m.a. fram í "Ferðamálaáætlun 2011-2020", “Menningarstefnu í mannvirkjagerð”, leiðbeiningarritinu „Góðir staðir“ og „Handbók um merkingar á ferðamannastöðum og friðlöndum”.
  6. Við mat á umsóknum er horft til gæða og trúverðugleika umsóknar.

Umsókn og fylgiskjöl
Umsókn skal senda inn á sérstöku umsóknareyðublaði, sjá hér að neðan, og henni þurfa að fylgja tiltekin gögn.  Í umsókn og fylgigögnum er kallað eftir eftirfarfarandi upplýsingum:

  1. Verkefnislýsingu og framtíðarsýn sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti.
  2. Kostnaðar- og verkáætlun. 
  3. Skriflegu samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila.
  4. Afriti af gildandi aðalskipulagi og deiliskipulagi ef við á frá viðkomandi sveitarfélagi. 
  5. Afstöðumynd sem sýnir hvernig verkefnið fellur að gildandi aðalskipulagi ef það er til staðar.  
  6. Öðrum gögnum sem styrkt geta umsókn.

Hverjir geta sótt um:
Einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.

Hvar ber að sækja um:
Umsóknareyðublað er að finna hér fyrir neðan. Eyðublaðið er á word-formi og er best að byrja á að vista það á eigin tölvu áður en útfylling hefst. 

Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna
Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna er vert að kynna sér neðangreint efni:

Nánari upplýsingar veitir Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður Akureyri
Netfang: elias@ferdamalastofa.is - Sími: 535-5510