Fara í efni

Styrkir iðnaðarráðuneytis til uppbyggingar í ferðaþjónustu á landsbyggðinni

skemmtiferdaskip4mar2005
skemmtiferdaskip4mar2005

Ath. Umsóknarfrestur rann út 5. mars. Tilkynnt verður um úthlutun í apríl.

 

Ákveðið hefur verið að veita 100 milljónum króna af byggðaáætlun 2006 ? 2009 til að styrkja uppbyggingu í ferðaþjónustu og renna frekari stoðum undir uppbyggingu atvinnugreinarinnar á landsbyggðinni.

Styrkirnir skiptast í tvo flokka og er nauðsynlegt að verkefnið sé atvinnuskapandi á viðkomandi svæði.

  • Móttökuaðstaða í höfnum fyrir farþega skemmtiferðaskipa: Varið verður 30 milljónum króna til upplýsingagjafar, fegrunar umhverfis, uppsetningar þjónustuhúss o.fl.
  • Nýsköpun í ferðaþjónustu: Varið verður 70 milljónum króna til uppbyggingar á nýjum svæðum, þróunar á nýrri vöru eða þjónustu er styrkir viðkomandi svæði sem ferðamannastað. Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til  nýsköpunargildis þeirrar vöru eða þjónustu sem sótt er um til.

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.

Leitað er eftir umsóknum frá klösum í ferðaþjónustu, sveitarfélögum, fyrirtækjum, einstaklingum og félagasamtökum.

Hámarksstyrkur til einstaks verkefnis getur orðið allt að 20 milljónir króna. Verkefnin skulu að mestu unnin á árinu 2009 og verður fyrri helmingur styrksins greiddur við undirskrift samnings og seinni helmingur styrksins við verklok, enda liggi þá fyrir ítarleg skýrsla um framvindu verkefnisins sem sé í samræmi við umsókn.

Umsóknareyðublöð og -frestur
Vönduðum umsóknum með trúverðugri kostnaðaráætlun skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á  vefnum. Sækja eyðublað - Excel.
(Vistið  eyðublaðið á eigin tölvu með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan og velja "Save")

Umsóknir sendist til:
Ferðamálastofa - Strandgötu 29 - 600 Akureyri
eða á elias@icetourist.is fyrir 6. mars n.k.

Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.
Áætlað er að úthlutun verði í apríl.

Einnig er bent á verkefnið Starfsorka sem hefur það markmið að auðvelda fyrirtækjum að ráða fólk í atvinnuleit.

*Styrkir af byggðaáætlun eru eingöngu til verkefna á þeim stöðum sem eru á byggðakorti samkvæmt samþykktum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Samkvæmt þeirri skilgreiningu má veita styrki til allra sveitafélaga á landinu nema Reykjavíkur, Kópavogsbæjar, Seltjarnarneskaupstaðar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Álftaness, Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps.