Fara í efni

Stórsókn í uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum með áherslu á friðlýst svæði og fjölgun áfangastaða

Stórsókn í uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum með áherslu á friðlýst svæði og fjölgun áfangastað…

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um úthlutun á ríflega 2,8 milljörðum króna til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og öðrum ferðamannastöðum. Annars vegar er um að ræða 722 milljóna króna úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2018 og hins vegar tæplega 2,1 milljarða króna úthlutun vegna þriggja ára verkefnaáætlunar landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2018-2020.

Sérstök áhersla á fjölgun viðkomustaða 

Þetta er í fyrsta sinn sem Framkvæmdasjóður ferðamannastaða styrkir ekki ferðamannastaði í eigu ríkisins og er það í samræmi við breytta löggjöf um sjóðinn. Alls hljóta 56 staðir styrk úr sjóðnum að þessu sinni. Sérstök áhersla er lögð á að fjölga viðkomustöðum ferðamanna til að stuðla að því að álag minnki á fjölsóttum stöðum og lýtur 21 verkefni að þessu markmiði. 

Þriggja ára landáætlun um uppbyggingu innviða

Nú var í fyrsta sinn úthlutað vegna þriggja ára verkefnaáætlunar landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2018 – 2020. Verkefnaáætlunin tekur m.a. til friðlýstra svæða og fjölsóttra staða í eigu íslenska ríkisins, valinna svæða sveitarfélaga auk landvörslu. Þá er fé veitt til óstaðbundinna áhersluverkefna. Alls er fjármagni veitt á 71 stað og eina gönguleið til fjölbreyttra verkefna, með sérstaka áherslu á vernd náttúru, minjavernd, bætt öryggi, svo og bætta aðstöðu fyrir gesti á þessu stöðum.