Fara í efni

Stóðsmölun og réttir í A-Húnavatnssýslu draga til sín sívaxandi fjölda ferðafólks

Stóðréttir
Stóðréttir

Dagana 17. og 18. september verður mikið fjör í Austur Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt. Heimamenn bjóða gestum og gangandi að slást í för og upplifa ósvikna gangna- og réttarstemmningu.

Alvöru þjóðlegt ævintýri
?Stóðréttarhelgi Skrapatunguréttar er hátíð heimamanna og ferðafólks þar sem er spilað sungið og skemmt sér að sið Íslendinga. Við bjóðum gestum að slást í för með gangnamönnum á eyðidalnum Laxárdal og upplifa alvöru þjóðlegt ævintýri. Þátttakendur geta hvort heldur sem er leigt hesta hjá heimamönnum eða mætt með sína eigin hesta,? segir Haukur Suska-Garðarsson, ferða- og atvinnumálafulltrúi, sem tekur við bókunum í stóðsmölunina.

Stóðhrossin verða rekin til byggða á laugardeginum 17. september. Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10. og síðan riðið sem leið liggur um Strjúgsskarð og norður Laxárdal. Haukur segist vilja benda fólki á að ekki er aðstaða til að geyma hross yfir nótt á Strjúgsstöðum að þessu sinni. Aðstaða verður til að geyma bíla og taka niður hross við sandnámu við Strjúgsstaði (ytri afleggjari). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.

Ferðamannafjallkóngur sér um leiðsögn gesta
Við Kirkjuskarðsrétt á Laxárdal hvíla hestar og menn og fá sér að eta og drekka eftir þörfum. Veitingar verða seldar á staðnum. Ráðgert er að leggja af stað kl. 16 frá Kirkjuskarði. Þaðan er riðið norður í Skrapatungrétt sem er ein myndarlegasta stóðrétt landsins og heillast gestir og heimamenn ávallt af tignarlegu stóðinu. Búið hefur verið til nýtt embætti í kringum þennan viðburð, ferðamannafjallkóngur. Sá sem ber þann titil er Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduóss. Ferðamannafjallkóngurinn, sem er heimavanur á þessum slóðum, mun sjá um fararstjórn og leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni.

Þótt fjöldi gesta taki þátt í stóðsmöluninni er þó enn fleiri sem láta sér nægja að koma akandi og fylgjast með gangnamönnum og réttarstörfum. Skrapatungurétt er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Blönduósi en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um 40 mínútur. Á laugardagskvöldinu kl 20 verður haldið til grillveislu í reiðhöllinni við Blönduós. Þeir sem vilja snæða í grillveislunni er beðnir að panta fyrir hádegi föstudaginn 16.september í síma 898 5695 eða 891 7863. Stemningin nær svo hámarki á dansleik síðar um kvöldið á Hótel Blönduós. Á sunnudagsmorgun hefjast réttarhöld í Skrapatungurétt um kl. 11. Bændur ganga í sundur hross sín og reka þau svo í lok dags til síns heima.

Nánari upplýsingar og bókanir í stóðsmölun, í síma 891 7863 eða í netfangi haukur@ssnv.is Nánari upplýsingar um réttir á Norðurlandi vestra má finna á www.nordurland.is og hjá Upplýsingamiðstöð Norðurlands vestra Varmahlíð, s. 455 6161, upplysingar@skagafjordur.is

Mynd:
Ferðamenn fjölmenna á Skrapatungurétt.