Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Flugþróunarsjóði

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr flugþróunarsjóði og er umsóknarfrestur til 31. ágúst næstkomandi.  Markmiðið með Flugþróunarsjóði er að styðja við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina Akureyri og Egilsstaði.

Með því er stuðlað að dreifingu ferðamanna um landið í samræmi við Vegvísi í ferðaþjónustu, bættri nýtingu innviða ríkisins, bættum búsetuskilyrðum og lífsgæðum heimamanna og bættum rekstrarskilyrðum atvinnureksturs á Norður- og Austurlandi.

Flugþróunarsjóðurinn veitir tvenns konar styrki:

  • Styrkir úr leiðarþróunardeild miðast við ákveðna upphæð fyrir hvern farþega sem lendir á Akureyri eða á Egilsstöðum.
  • Styrkir úr markaðsþróunardeild eru ætlaðir til kynningar á þeim flugleiðum sem um ræðir.

Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2016. Umsóknum skal skilað rafrænt á sérstöku umsóknareyðublaði til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á netfangið postur@anr.is

Nánari upplýsingar