Fara í efni

Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða

Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða

Á dögunum kom út áhugavert rit sem nefnist „Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða“. Því er ætlað að skýra tengslin á milli skipulagsgerðar á svæðisvísu og þeirrar greinar sem kallast á ensku place branding eða regional branding. Á íslensku hefur greinin verið nefnd mörkun svæða, ímyndarsköpun svæða eða einfaldlega „að branda“ svæði.

Þekkt í ferðaþjónustu

Þeim aðferðum sem fjallað er um í ritinu hefur einkum verið beitt við þróun og markaðssetningu ferðamannastaða og -svæða og þar með eflingu ferðaþjónustu, en er nú beitt við byggðaþróun í æ ríkari mæli. Áherslan er þá á að skilgreina tengsl íbúa við sitt svæði og móta mark - brand - svæðisins á grunni þess.

Stefnumótun og mörkun þurfa að spila saman

Í formála ritsins segir m.a.: „Mark lýsir þeirri upplifun sem svæði býður, t.d. út frá sérkennum í umhverfi og menningu og þeirri þjónustu sem er í boði. Markinu er ætlað að stuðla að skýrri og samræmdri kynningu á svæðinu í þeim tilgangi að laða að ferðamenn, fyrirtæki, fjárfesta og nýja íbúa. Til þess að mark þjóni tilgangi sínum þarf að tryggja að stefnumótun um þróun svæðis taki mið af því og styðji við það. Stefnan – og framfylgd hennar – getur tekið til landnotkunar, mannvirkjagerðar og almennrar umhverfismótunar sem og atvinnulífs og menningarmála.

Til umfjöllunar á Ferðamálaþingi

Höfundur ritsins er Matthildur Kr. Elmarsdóttir hjá Alta ehf., sem jafnframt gefur ritið út. Þess má geta að Matthildur verður meðal fyrirlesara á Ferðamálaþinginu í næsta mánuði þar sem málefnið er til umfjöllunar.

Ritið er aðgengilegt hér að neðan í PDF-formi.

Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða