Fara í efni

Stefnan tekin á heilsuferðaþjónustu

sundlaug
sundlaug

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Magnús Orri Schram formaður Samtaka um heilsuferðaþjónustu undirrituðu í gær samning um stuðning iðnaðrráðuneytis við fyrsta stigs markaðsátaksins ?Heilsulandið Ísland?. Meginmarkmið samstarfsins er að þróa og hanna sameiginlegt markaðsefni til kynningar á heilsuferðaþjónustu á Íslandi og hefja markaðsátak á Heilsulandinu Íslandi.

Um 90 manns mættu á stofnfund Samataka um heilsuferðaþjónustu sem haldinn var í Reykjavík 28. janúar sl. og hafa samtökin nú hafið markvissa þróun vörumerkis fyrir ?Heilsulandið Ísland? ásamt ímyndartexta, stöðlum, skilgreiningum m.a. á því hvað vörumerkið stendur fyrir, hverjir megi nýta sér það og í hvaða samhengi.

Samhliða kynningu á vörumerkinu í júní 2010 verða kynntar ?vörur? frá aðilum innan samtakanna eða afsprengi samstarfs aðilanna. Samtök um heilsuferðaþjónustu munu vinna að ofangreindum markmiðum í nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir tengdar ferðamálum, atvinnuþróun og heilbrigðismálum.

Samtök um heilsutengda ferðaþjónustu eru vistuð á Ferðamálastofu og er starfsmaður þeirra Sunna Þórðardóttir, ferðamálafræðingur.