Fara í efni

Stefna Ferðamálastofu 2017-2020

Forsíða stefnu FerðamálastofuNú á haustdögum réðist Ferðamálastofa í að móta stefnu stofnunarinnar fyrir árin 2017-2020. Stefnan er nú komin út og aðgengileg hér á vefnum.

Unnið í verkefnahópum

Allt starfsfólk Ferðamálastofu kom að verkinu þar sem unnið var í verkefnahópum undir leiðsögn ráðgjafa frá Capacent. Við verkefnið var nýtt sú vinna sem unnin hefur verið hjá Ferðamálastofu með reglulegu millibili allt frá árinu 2008 um stefnumótun og stjórnskipulag, framtíðarsýn, markmið og leiðir. Einnig kom að góðu gagni vinna um stefnumótun málaflokka sem unnin hefur verið á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis við innleiðingu laga um opinber fjármál. 

Greining núverandi stöðu og horft til framtíðar

Sérstök áhersla hefur verði lögð á að greina núverandi stöðu Ferðamálastofu, leggja mat á markmið, leiðir, mælikvarða og árangurvísa, með hliðsjón af breytingum í umhverfi ferðamála, vaxandi ferðamannafjölda o.s.frv.

Uppbygging stefnunnar

Í þeirri áherslustefnu sem birtist í skjalinu er gerð grein fyrir eftirfarandi efnisatriðum:

  • Framtíðarsýn, hlutverk og gildi Ferðamálastofu
  • Meginmarkmið, leiðir og mælikvarðar í starfseminni er varða:
    • Skipulags-, umhverfis- og öryggismál á ferðamannastöðum
    • Gæða- og umhverfismál ferðaþjónustufyrirtækja
    • Svæðisbundna þróun
    • Leyfisveitingar og eftirlit
    • Alþjóðlegt samstarf
    • Gagnaöflun og rannsóknir
    • Miðlun upplýsinga og gagna.

Stefnan í heild er aðgengileg á slóðinni hér að neðan: