Fara í efni

Starf framkvæmdastjóra ETC laust til umsóknar

Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra Ferðamálaráðs Evrópu, The European Travel Commission (ETC). Aðildarlönd eru um 40 talsins, þar með talið Ísland.

Um er að ræða spennandi starf í alþjóðlegu umhverfi en viðkomandi verður staðsettur í Brussel. Umsóknarfrestur er til 7. nóvember næstkomandi en ráðið er til tveggja ára í senn.

Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi PDF-skjali: Auglýsing um starf framkvæmdastjóra ETC