Fara í efni

Stafræn fræðsla og markaðssetning - Námskeið á Vestfjörðum

Mynd: Nathan Hulsey á Unsplash
Mynd: Nathan Hulsey á Unsplash

Ferðamálastofa býður í samvinnu við Vestfjarðastofu upp á 2ja daga námskeið í stafrænni markaðssetningu, annað á Patreksfirði en hitt á Hólmavík. Námskeiðið ætlað er litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Farið verður í helstu atriði stafrænnar þróunnar og markaðssetningar ferðaþjónustufyrirtækja, svo sem bókunarsíður (Booking og Expedia t.d.), Google, samfélagsmiðla og heimasíður, leitarvélabestun og gerð markaðsáætlana.

Lifandi og hagnýtt 

Námskeiðið verður lifandi og hagnýtt og gert er ráð fyrir að þátttakendur taki með sér tölvur, bretti upp ermar og vinni markvisst á meðan á námskeiðinu stendur. Kennari er Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunnar hjá Ferðamálastofu. Kennir hún í fjarkennslu en starfsmaður Vestfjarðastofu verður á staðnum og stýrir umræðum og verkefnavinnu. 

Verð

Verð: 22.900 (innifalið kennslugögn, kaffi/te og léttur hádegisverður). Þau fyrirtæki sem taka þátt í námskeiðinu eiga kost á að sækja styrk til Vestfjarðastofu um áframhaldandi ráðgjöf á einhverju sviði stafrænna mála eða markaðssetningar.

Dagsetningar og staðir

Hólmavík:
4. nóv og 25. nóv. kl. 09-16 (hádegishlé frá 12-13)
Staðsetning: Hnyðja, Þróunarsetrinu Hólmavík

Patreksfjörður: 
Dagsetningar: 11. nóv og 2. des. kl. 09-16 (hádegishlé frá 12-13)
Staðsetning: Ólafshús, Aðalstræti 5, Patreksfirði  

Skráning

Vestfjarðastofa, Díana Jóhannsdóttir, diana@vestfirdir.is

Nánari upplýsingar

  • Áhersla á lítil og meðalstór fyrirtæki.
  • Hámark 12 þátttakendur á hvoru námskeiði. Kennt er í litlum hópum til þess að hægt sé að vinna markvisst á staðnum.
  • Inga Rós Antoníusdóttir veitir allar frekari upplýsingar ingaros@ferdamalastofa.is

Mynd Nathan Hulsey á Unsplash