Fara í efni

Spegillinn - Nýtt markaðsþróunarverkefni

Spegill 2
Spegill 2

Íslandsstofa og Ferðamálastofa kynna markaðsþróunarverkefnið Spegilinn, sem er sérstaklega ætlað fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Samsvarandi verkefni hefur verið rekið í Finnlandi undanfarin ár með frábærum árangri.

Megin áherslur verkefnisins eru:

  • Greining:
    Eitt fyrirtæki er í brennidepli á hverjum vinnufundi. Á fundinum fer fram opið og gagnrýnið mat á stöðu, stefnu, styrkleikum og veikleikum, framtíðarsýn, markmiðum og leiðum hjá viðkomandi fyrirtæki.
  • Úrvinnsla:
    Á hverjum vinnufundi eru fyrirfram ákveðnir lykilþættir yfirfarnir í skipulagðri hópavinnu, undir stjórn ráðgjafa. Við lok vinnufundarins liggja fyrir ábendingar og tillögur um úrbætur, tækifæri og leiðir til að bæta og auka árangur.
  • Úrbætur og árangursmið:
    Úrbótatillögur hópsins eru kynntar fyrir viðkomandi fyrirtæki og aðstoð veitt við að koma þeim framkvæmd. Vinnan miðar að því að tillögur og ábendingar geti orðið leiðarljós sem stjórnendur fyrirtækisins hafa við markaðsþróun þess til framtíðar.

Átta til tíu fyrirtækjum verður boðin þátttaka í fyrsta verkefninu og mun það standa í jafn marga mánuði. Einn vinnufundur er í hverjum mánuði meðan verkefnið stendur, tveir dagar í senn. Þátttökugjald er kr. 150.000. Að auki þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir að greiða fyrir ferðir innanlands, gistingu og fæði á meðan á fundi stendur.

Þátttakendur þurfa að vera tilbúnir að opna „allar bækur“ fyrir hópnum og gert verður trúnaðarsamkomulag milli allra aðila.

Umsóknarfrestur er til 15. mars.
Sjá verkefnislýsingu á www.islandsstofa.is/spegillinn

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Hermann Ottósson, forstöðumaður markaðsþróunar, hermann@islandsstofa.is, sími 511 4000 og Erna Björnsdóttir, verkefnisstjóri, erna@islandsstofa.is