Fara í efni

Special Tours er nýjasta fyrirtækið í VAKANUM

Special Tours er nýjasta fyrirtækið í VAKANUM

Special Tours er nýjasta fyrirtækið í VAKANUM en það var stofnað árið 1996. Fyrirtækið hlaut einnig gullmerki í umhverfiskerfi VAKANS.

Special Tours er ferðaþjónustufyrirtæki við gömlu höfnina í Reykjavík sem hóf starfsemi árið 1996. Eigendur þess eru Hjörtur Hinriksson, Jón Þór Gunnarsson, Hinrik Kristjánsson og Magnús Kr. Guðmundsson. Fyrirtækið býður upp á hvalaskoðunarferðir, lundaskoðunarferðir, sjóstangveiði, norðurljósaferðir, kvöldverðasiglingar, hvataferðir og skólaferðir. Að auki er boðið upp á sérsniðnar veisluferðir með öllu inniföldu.

Á myndinni eru Þurý Hannesdóttir, Inga Dís Richter og Magnús Kr. Guðmundsson hjá Special Tours.
Við hjá VAKANUM óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur.

www.vakinn.is