Fara í efni

SMS-ferðaleikurinn mælist vel fyrir

SMS-ferðaleikur Ferðamálaráðs, Shellstöðvanna og Símans, sem kallast "Á puttanum", er nú í fullum gangi. Þeir sem taka þátt eiga þess kost að hreppa ýmsa góða vinninga sem dregnir eru út í hverri viku.

Hver upplýsingamiðstöð með sitt númer
Hugmyndin með leiknum er að hvetja Íslendinga á ferð um landið til að heimsækja upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, þjónustumiðstöðvar Símans og Shellstöðvar um land allt og afla sér upplýsinga um landið. Leikurinn gengur þannig fyrir sig að hver upplýsingamiðstöð hefur sitt ferðanúmer og þetta númer geta gestir sent með SMS í símanúmerið 1900. Þar með fara þeir í verðlaunapott með glæsilegum vinningum. Eftir því sem fleiri miðstöðvar eru heimsóttar og fleiri ferðanúmer send inn aukast líkur á vinningi en hvert SMS-skeiti kostar 29,90 krónur.

Veglegir vinningar
Í hverri viku til 30. ágúst verða dregnir út eigulegir vinningar, m.a. GSM-símar, GSM-sumarkort, eldsneytisávísanir og gasgrill. Dregið verður úr sérstökum lokapotti þann 5. september um ævintýralega jeppa-hálendisferð með Hálendingum, hvalaskoðunarferð með Sæferðum, GSM-síma og gasgrill. Nöfn vinningshafa eru birt á heimasíðu Skeljungs. Leikurinn hefur mælst vel fyrir og þátttaka verið með ágætum.