Slæm spá í kortunum - Höldum ferðafólki upplýstu

Safetravel hefur sent út viðvörun vegna slæmrar veðurspár sem er í kortunum næstu daga. Mikilvægt er að ferðaþjónustuaðilar upplýsi viðskiptavini sína um þær aðstæður sem kunna að skapast, ekki síst á fjallvegum og hálendinu. Hér að neðan eru hlekkir á veðurviðvarnir frá Safetravel sem við mælumst til að ferðaþjónustuaðilar prenti út, hengi á áberandi stað og upplýsi gesti.
2. júní 2025: Gular og appelsínugular viðvaranir frá mánudagsmorgni og fram eftir þriðjudegi á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austfjörðum og á hálendinu. Hvassviðri og ofankoma, slydda eða snjókoma til fjalla. Erfið akstursskilyrði, einkum fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs. Töluverðar líkur á samgöngutruflunum, vegir gætu lokast.
3. júní 2025: Gular og appelsínugular veðurviðvaranir vegna hvassviðris á öllu landinu.
3. júní 2025: Gular veðurviðvaranir vegna rigninga frá hádegi á þriðjudag og til miðnættis á Austurlandi og Austfjörðum. Búast má við auknum vatnavöxtum og aukinni hættu á flóðum og skriðuföllum.
Skjöl til útprentunar
Smellið hér fyrir pdf skjal og hér fyrir jpg skjal.