Fara í efni

Skráningarfrestur á World Travel Market 2008

WTN lógó
WTN lógó

Líkt og undanfarin ár tekur Ferðamálastofa þátt í World Travel Market ferðasýningunni í London. Íslenskum ferðaþjónustuaðilum býðst að fá aðstöðu í bás ráðsins gegn föstu gjaldi og hér að neðan er skráningarblað fyrir sýninguna.

World Travel Market er ein stærsta ferðasýning í heimi og haldin árlega. Að þessu sinni fer hún fram dagana 10.-13. nóvember og er í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár. Sýningin er opin 2 daga fyrir ferðaþjónustuaðila ( trade) og 2 daga fyrir almenning. Ferðamálastofa sér um að útbúa básana og skapa mönnum aðstöðu til að hitta viðskiptavini sína en síðan er undir hverjum og einum komið að nýta tækifærið sem best.

Skráningu lýkur 10 september
Hér fyrir neðan er tengill á eyðublað til skráningar í íslenska sýningarbásinn á World Travel Market 2008 en vakin er athygli á því að skráningu lýkur 10. september næstkomandi. Einnig er tengill á heimasíðu sýningarinnar.

Nánari upplýsingar um sýningar í Bretlandi veitir Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, markaðsfulltrúi,  siggagroa@icetourist.is Sími: 535 5500