Fara í efni

Skráning og auglýsingar í Íslandsbækling 2008

Íslandsbæklingur 2007
Íslandsbæklingur 2007

Nú er hægt að fara að panta skráningu og auglýsingar í Íslandsbækling Ferðamálastofu fyrir árið 2008. Hér er um að ræða myndskreyttan landkynningarbækling sem kemur út árlega í um 450 þúsund eintökum og er dreift víðsvegar um heim.

Íslandsbæklingurinn kemur út á tímabilinu í október/ nóvember ár hvert. Hann er á 12 tungumálum; ensku, dönsku, sænsku, norsku, finnsku, hollensku, ítölsku, spænsku og frönsku auk sérútgáfu fyrir þýskumælandi lönd, og Norður-Ameríku,Japan og Kína. Upplagið er sem fyrr segir 450 þúsund eintök. Skrifstofur Ferðamálastofu erlendis, sem og ferðaheildsalar í viðkomandi löndum, annast dreifingu bæklingsins, auk þess sem hann er kynntur á ferðasýningum víðsvegar um heim og sendur til íslenskra sendiráða og ræðismanna. Íslandsbæklingurinn er einnig settur inn á landkynningarvefi stofnunarinnar í PDF-útgáfu.

Leitað er eftir þátttöku aðila í ferðaþjónustu í kostnaði við gerð bæklingsins.  Í miðju hans er að finna gulu síðurnar. Þær skiptast í 5 aðalflokka:

  • Travel Facts
  • Transportation
  • Tours
  • Activities
  • Accommodation

Undir hverjum aðalflokki eru síðan undirflokkar. Þar gefst kostur á að fá birt nafn fyrirtækisins, síma- og faxnúmer auk netfangs/heimasíðu, alls 4 línur.
Vinsamlegast takið fram undir hvaða aðalflokki/flokkum þið viljið fá skráningu.

  • Skráningargjald grunnskráningar er 68.000.-
  • 50% afsláttur er veittur af hverri skráningu eftir þá fyrstu
  • Ef keypt er stærri auglýsing í bæklingnum fæst 1 grunnskráning frí með auglýsingunni.


Upplýsingarnar skulu sendar á skrifstofu Ferðamálastofu, Akureyri fyrir 1. júlí næstkomandi. Faxnúmerið er: 464-9991 og eins er hægt að nálgast upplýsingar í gegnum netfangið: upplysingar@icetourist.is