Fara í efni

Skráning hafin á Vestnorden 2014

Vestnorden er fyrir löngu orðinn fastur liður í íslenskri ferðaþjónustu.
Vestnorden er fyrir löngu orðinn fastur liður í íslenskri ferðaþjónustu.

Skráning er hafin á Vestnorden ferðakaupstefnuna sem verður haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 30. september - 1. október 2014.

Samstarf Íslands, Færeyja og Grænlands

Vestnorden er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Vestnorden haldin til skiptis af löndunum þremur, þar af annað hvert ár á Íslandi.

Kaupendur víða að

Á Vestnorden koma saman ferðaþjónustuaðilar á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum og kaupendur ferðaþjónustu, eða ferðaheildsalar, víðs vegar að úr heiminum. Þá koma einnig til kaupstefnunnar blaðamenn og boðsgestir. Í tengslum við Vestnorden gefst ferðaheildsölunum einnig kostur á að fara í kynnisferðir til landanna þriggja.

Vestnorden 2014

Íslandsstofa er framkæmdaaðili Vestnorden í ár en Congress Reykjavík sér um skipulagningu. Nú er aðilum í fyrsta sinn boðið upp á aukinn sýnileika með því að kaupa auglýsingar eða sem styrktaraðili. Nánari upplýsingar um kaupstefnuna er að finna á vefsíðunni www.vestnorden.com og þar fer skráning fram.