Fara í efni

Skráning hafin á Vest Norden

Vn06_1
Vn06_1

Nú er hafin skráning á Vest Norden kaupstefnuna. Hún fer að þessu sinni fram dagana 10.-12. september næstkomandi í Þórshöfn í Færeyjum. Verður þetta  í 22 sinn sem kaupstefnan er haldin.

Skráning fer fram á netinu www.vestnorden.com

Að sögn Ársæls Harðarsonar forstöðumanns markaðssviðs Ferðamálastofu verður fyrirkomulagið svipað og verið hefur undanfarin ár. Sýnendur frá Íslandi bera ábyrgð á því að skrá sig sjálfir á vefnum og einnig að hafa samband við Atlantic Airways símleiðis og panta flug á sérverði vegna Vest Norden. Sjá nánar www.atlantic.fo

Kostnaður vegna þátttöku er frá DKK 8.500 og síðasti dagur skráningar er 16. júlí.

Mögulegt verður að óska eftir fundum við kaupendur í byrjun ágúst.