Fara í efni

Skráning hafin á ITB í Berlín

ITB
ITB
 Skráning er nú hafin á ITB í Berlín, eða Internationale Tourismus-Börse, sem er ein stærsta ferðasýning í heimi Að þessu sinni stendur sýningin yfir dagana 7.-11. mars 2007. Skráningarfrestur er til 1. desember næstkomandi.

Sýningin hefur verið haldin árlega í á þriðja áratug. Ferðamálastofa hefur tekið þátt í henni frá upphafi og kynnt þar Ísland og íslenska ferðaþjónustu. Líkt og á öðrum ferðasýningum erlendis býðst íslenskum ferðaþjónustuaðilum að fá aðstöðu í bás Ferðamálastofu gegn föstu gjaldi. Ferðamálastofa sér um að útbúa básana og skapa mönnum aðstöðu til að hitta viðskiptavini sína en síðan er undir hverjum og einum komið að nýta tækifærið sem best. Sýningarstandar Ferðamálastofu á þessum sýningum standa einnig opnir erlendum fyrirtækjum er koma að sölu Íslandsferða. Sýningarbás Ferðamálastofu á ITB er hluti af sameiginlegu sýningarsvæði Norðurlandanna.

Mynd: Frá ITB ferðasýningunni í Berlín.