Fara í efni

Skráning á ráðstefnu um heilsuferðaþjónustu

BlaaLonid
BlaaLonid

Skráning er nú hafin á ráðstefnu um heilsuferðaþjónustu,  Heilsa ? Upplifun ? Vellíðan, sem iðnaðarráðuneytið í samstarfi við og Ferðamálastofu, Háskólann á Hólum og Vatnavini gengst fyrir þann 18 mars næstkomandi. Jafnframt liggur dagskráin fyrir í heild sinni.

Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica kl. 13-17. Mörg áhugaverð erindi verða flutt. Inngangserindið flytur Melanie Smith frá Corvinus University í Budapest og nefnist það ?Health Tourism Trends: Back to the Future.? Einnig ávarpar Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, ráðstefnuna. Ráðstefnustjóri Edward Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála. Í lok ráðstefnu verða pallborðumræður sem Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, stjórnar.

Dagskrá:

13:00 Setning ráðstefnu. Laufey Haraldsdóttir Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

Ávarp ráðherra: Össur Skarphéðinsson iðnaðar- og ferðamálaráðherra

Health Tourism Trends: Back to the Future
Melanie Smith, Senior Lecturer in Tourism Management
         Corvinus University, Budapest.

Sýn fyrir Heilsulandið Ísland
Vatnavinir: Sigurður Þorsteinsson iðnhönnuður

Bláa Lónið ? mikilvægi rannsókna í öflugu nýsköpunarstarfi
Ása Brynjólfsdóttir rannsóknar- og þróunarstjóri Bláa Lónsins  

Heilsutengd ferðaþjónusta
Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri Heilbrigðisráðuneytið

15:00 Kaffihlé

Heilsuferðaþjónusta í Þingeyjarsýslum.
Gunnar Jóhannesson Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga

Heilsuþorp á Flúðum
Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur

Miðaldaböð í Reykholtsdal 
 Kjartan Ragnarsson Landnámssetri Íslands

Móðir jörð og maðurinn; tengslin í sinni tærustu mynd
Anna Dóra Hermannsdóttir ferðaþjónustunni Klængshóli

Hvernig eflum við heilsuferðaþjónustu á Íslandi
Pallborð, stjórnandi Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Ferðamáladeild Háskólans á Hólum

Í pallborði: Gunnlaugur K Jónsson formaður NLFÍ, Grímur Sæmundsen Bláa Lónið, Þorsteinn Ingi Sigfússon Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur og detoxráðgjafi.

17:00 Ráðstefnuslit

Ráðstefnustjóri: Edward Huijbens forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála

Ráðstefnugjald: 2.500,-. Nemendur: 1.250,-