Fara í efni

Skráning á námskeið fyrir starfsfólk í upplýsingagjöf

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva og aðra þá sem starfa við upplýsingagjöf til ferðamanna. Það verður haldið í Námunni, sal Endurmenntunar Háskóla Íslands 4. júní frá 13:00 – 17:00 og sent út á Netinu. Við viljum ítreka að námskeiðið er einnig opið starfsmönnum gististaða, bensínstöðva, sundlauga o.s.frv.

Ferðamálastofa greiðir ferðakostnað starfsfólks landshluta- og svæðismiðstöðva í opinberum rekstri á fundarstað en einnig er boðið upp á fjarfundi fyrir þá sem þess óska.

Dagskráin er eftirfarandi:

12:30 Skráning og afhending gagna
13:00 Mikilvægi upplýsingamiðstöðva – Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu.
13:10 Hvar finn ég fyrirtæki í ferðaþjónustu? Gagnagrunnur og leitarvél Ferðamálastofu – Halldór Arinbjarnarson upplýsingastjóri Ferðamálastofu.
13:30 Kortasjá Landmælinga, hvernig getur hún gagnast við upplýsingagjöf? – fulltrúi Landmælinga Íslands
14:15 Kaffi/Te
14:30 Þjónustulund gefur gull í mund - Helga Braga Jónsdóttir
15:30 Vakinn – öryggis – og gæðamál ferðaþjónustunnar
15:50 Aukin upplýsingagjöf til ferðamanna - Jónas Guðmundsson verkefnisstjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörgu.
16:50 Námskeiðslok

Skráningareyðublað

Skráningu lýkur 20. maí og verða fundarstaðir auglýstir stuttu eftir það.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest! Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir hrafnhildur@ferdamalastofa.is