Skorað á ferðaskrifstofur að ganga frá árlegum skilum
Þann 1. apríl síðastliðinn rann út frestur sem ferðaskrifstofur hafa til að skila gögnum vegna árlegs endurmats tryggingafjárhæða (árlegra skila). Rúmlega 75% ferðaskrifstofa hafa þegar gengið frá sínum skilum eða rúmlega 300 af 406 aðilum.
Ekki hægt að veita viðbótarfrest
Frestur vgegna skilanna er lögbundinn og því ekki hægt að veita viðbótarfrest. Þær ferðaskrifstofur sem ekki hafa skilað munu frá tilkynningu um fyrirhugaða álagningu dagsekta á allra næstu dögum. Allar ákvarðanir um álagningu dagsekta eru birtar á vef Ferðamálastofu. Fjárhæð dagsekta geta verið á bilinu 50-500 þúsund á dag. Því er skorað á ferðaskrifstofur að bregðast strax við til að komast hjá viðurlögum.
Slóð á vefgátt vegna skila, leiðbeiningar og upplýsingar er að finna hér https://www.ferdamalastofa.is/is/leyfi/ferdaskrifstofur/arlegt-endurmat-tryggingafjarhaeda-arleg-skil
Að gefnu tilefni bendir Ferðamálastofa á að gögnum er ekki skilað sjálfkrafa við greiðslu umsýslugjalds, staðfesta þarf skil að greiðslu lokinni. Gögn hafa ekki borist Ferðamálastofu fyrr en að staðfesting á skilum hefur birst innsendanda.