Skert farsímasamband hefur áhrif á ferðaþjónustu og öryggi ferðamanna
Ferðamálastofa hefur kannað reynslu ferðaþjónustufyrirtækja af breytingum á farsímasambandi í kjölfar lokunar 2G- og 3G-farsímakerfa hér á landi. Niðurstöðurnar benda til þess að fyrirtæki víða um land hafi orðið vör við skert og óstöðugra farsímasamband og að breytingarnar geti haft áhrif á öryggi ferðamanna.
Tilefni könnunarinnar var að Ferðamálastofu höfðu borist ábendingar frá ferðaþjónustuaðilum um versnandi farsímasamband og vaxandi áhyggjur af áhrifum þess á starfsemi og öryggi. Í kjölfarið ákvað stofnunin að kanna málið nánar og kalla eftir reynslu fyrirtækja úr ólíkum greinum ferðaþjónustunnar.
Könnunin var send út 19. ágúst og bárust alls 132 svör frá ferðaþjónustufyrirtækjum um allt land. Svarendur sinna fjölbreyttri starfsemi, meðal annars leiðsögn, ferðum um óbyggðir og afskekkt svæði, gistingu, afþreyingu, samgöngum og annarri þjónustu við ferðamenn.
Skert samband víða um land
Niðurstöðurnar sýna að stór hluti svarenda hefur orðið var við breytingar á farsímasambandi eftir lokun eldri farsímakerfa. Algengast er að fyrirtæki greini frá því að farsímasamband nái ekki lengur til ákveðinna svæða, að samband sé óstöðugra og að símtöl slitni eða nái ekki í gegn. Einnig eru dæmi um lélegt eða ekkert gagnasamband.
Vandinn virðist ekki bundinn við eitt landsvæði. Ábendingar berast víða að af landinu, en áhrifin geta orðið sérstaklega mikil þar sem starfsemi fer fram á afskekktum svæðum, fjarri bakvakt og viðbragðsaðilum.
Fjarskipti mikilvægur hluti af öryggiskeðjunni
Í svörum fyrirtækjanna koma fram dæmi um að skert samband hafi torveldað samskipti þegar upp hafa komið slys, veikindi eða aðrar óvæntar aðstæður. Meðal annars er lýst tilvikum þar sem erfitt hefur reynst að ná sambandi við neyðarþjónustu eða bakvakt og þar sem starfsfólk hefur þurft að færa sig um stað til þess að ná farsímasambandi.
Einnig kemur fram að breytingarnar geti haft áhrif á ýmiss konar búnað sem reiðir sig á farsímakerfi. Niðurstöðurnar undirstrika því mikilvægi áreiðanlegra fjarskipta sem hluta af öryggiskeðju ferðaþjónustunnar, sérstaklega þegar starfsemi fer fram utan þéttbýlis eða á afskekktum svæðum.
Niðurstöðurnar teknar áfram til skoðunar
Ferðamálastofa hefur fylgt niðurstöðunum eftir í samtali við hagaðila. Markmiðið er að varpa skýrara ljósi á áhrif breytinganna og hvernig tryggja megi að fjarskipti styðji áfram við örugga ferðaþjónustu um land allt.
Niðurstöðurnar hafa meðal annars verið ræddar við Fjarskiptastofu og hagaðila ferðaþjónustunnar með áherslu á þau áhrif sem breytingar á farsímasambandi kunna að hafa á öryggi ferðamanna.