Fara í efni

Sjötíu og sjö styrkir veittir vegna mótvægisaðgerða á sviði ferðaþjónustu

Mótvægisaðgerðir 2008 dreifing
Mótvægisaðgerðir 2008 dreifing

Á vef iðnaðarráðuneytisins kemur fram að gengið hefur verið frá styrkveitingum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009. Styrkirnir voru auglýstir í janúar sl. og voru 160 milljónir króna til úthlutunar. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar og bárust alls 303 umsóknir. Alls hlutu 77 verkefni styrk.

Hæstu styrkina hlutu Sögugarður í Grundarfirði og Félag áhugamanna um víkingaverkefni á slóðum Gísla Súrssonar á Þingeyri, sex milljónir hvort verkefni.

Við mat á umsóknum var m.a. tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, fjölda tonna sem skerðast, gæða og mögulegs árangurs verkefna auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa.

Iðnaðarráðuneytið hefur falið Ferðamálastofu að gera samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefnanna en styrkirnir verða greiddir út í tvennu lagi.