Sjálfbærnivísir GDS: Höfuðborgarsvæðið í hópi 10 sjálfbærustu áfangastaðanna
Höfuðborgarsvæðið er á topp 10 lista yfir sjálfbærustu áfangastaðina, samkvæmt GDS sjálfbærnivísinum (e. Global Destination Sustainability Index). Alls tók 81 áfangastaður þátt og stekkur höfuðborgarsvæðið upp um 7 sæti frá því í fyrra.
2 árum á undan áætlun
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins og Meet in Reykjavík standa sameiginlega að þátttöku höfuðborgarsvæðisins í sjálfbærnivísinum en Meet in Reykjavík hóf vegferðina fyrir 10 árum. Í frétt á vef Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins kemur fram að árið 2023 hafi verið mörkuð stefna fyrir áfangastaðinn af hagaðilum með Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins um að vera leiðandi í sjálfbærni. Skilgreint markmið er að vera á meðal 10 efstu í GDS sjálfbærnivísinum fyrir árið 2027. Því markmiði hefur nú verið náð tveimur árum á undan áætlun og því er ljóst að höfuðborgarsvæðið er fremst í flokki áfangastaða á sviði sjálfbærni.
Fjölmargir þættir undir
GDS sjálfbærnivísirinn er alþjóðlegur mælikvarði sem metur frammistöðu áfangastaða þegar kemur að sjálfbærni á fjórum lykilsviðum:
- Stjórnun áfangastaðar – Sem snýr þá einkum að starfi Markaðsstofunnar og Meet in Reykjavík
- Frammistaða birgja – Hvernig ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu standa sig almennt þegar kemur að sjálfbærni.
- Félagslegar framfarir – Nær yfir ýmsa þætti sem varða áfangastaðinn s.s., öryggi, spillingu aðgengi að upplýsingum, heilsu og vellíðan, jafnrétti og fjármögnunarkerfi.
- Umhverfismál – Metur hvernig áfangastaður stendur sig í þáttum á borð við baráttu gegn loftslagsbreytingum, losun kolefnis, nýtingu endurnýjanlegrar orku, auðlindanýtingu, gæði almenningssamgangna, loftgæði og líffræðilegan fjölbreytileika
Norrænar borgir framarlega
Helsinki er nú annað árið í röð í fyrsta sæti GDS sjálfbærnivísisins á undan Gautaborg og Kaupmannahöfn. Alls eru 7 borgir frá Norðurlöndunum á topp 10 listanum.