Fara í efni

Sérstakur jólapakki - Reiði guðanna?

Hraunmolar
Hraunmolar

Á Þorláksmessu barst Ferðamálastofu lítill pakki frá konu í Kanada. Þegar pakkinn var opnaður komu í ljós tveir litlir hraunmolar og bréf þar sem sagði meðal annars eitthvað á þessa leið:

?Á ævintýralegri ferð minni um Ísland í sumar valdi ég mér hraunmola og tók með mér heim. Síðan ég kom heim hefur ógæfan elt mig. Mér var sagt frá því að á Hawaii væru ferðamenn varaðir við því að taka með sér hraunmola þar sem það skapaði reiði guðanna að hrófla svo við náttúrunni og ógæfa myndi fylgja þeim sem það gerði. Ef til vill á þetta líka við á Íslandi þar sem bæði Ísland og Hawaii eru eldfjallaeyjur. Því sendi ég hér með þá mola sem ég tók og skila þeim þannig aftur til þeirra heimkynna.?

Ekki kemur raunar fram í bréfinu hvar á landinu hraunmolarnir voru teknir en Ferðamálastofa mun að sjálfsögðu verða við beiðni konunnar og skila náttúru Íslands þeim aftur.