Fara í efni

SBA Norðurleið nýr þátttakandi í VAKANUM

Bergþór Erlingsson markaðsstjóri (t.v.) og Gunnar M. Guðmundsson framkvæmdastjóri með VAKA-fánann.
Bergþór Erlingsson markaðsstjóri (t.v.) og Gunnar M. Guðmundsson framkvæmdastjóri með VAKA-fánann.

Nýjasti þátttakandinn í VAKNUM, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, er SBA-Noðurleið. Það fékk einnig gullmerki í umhverfiskerfi VAKANS.

SBA-Norðurleið hf. sérhæfir sig í fólksflutningum og er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar hér á landi. Fyrirtækið hefur yfir að ráða um 70 hópferðabifreiðum af öllum stærðum.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Akureyri en einnig er skrifstofa og verkstæði í Hafnarfirði. Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns árið um kring en yfir sumartímann rúmlega 120 starfsmenn. Fyrirtækið tekur að sér akstur með hópa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og íþróttafélög. Einnig umfangsmikinn akstur fyrir íslenskar og erlendar ferðaskrifstofur.

SBA – Norðurleið býður upp á mikið úrval dagsferða út frá Akureyri. T.d. í Mývatnssveit, að Dettifossi, til Húsavíkur og í Kverkfjöll. Þá býður fyrirtækið einnig upp á daglegar sumaráætlunarferðir fyrir erlenda ferðamenn á nokkrum leiðum.