Fara í efni

Samstarf Iceland Excursions og Reykjavík International Film Festival

Iceland Excursion
Iceland Excursion

Iceland Excursions og Reykjavík International Film Festival hafa gert mér sér samning til næstu þriggja ára.Mun Iceland Excursions m.a. leggja til hópferðabíla og leiðsögumenn í sérstakar ferðir fyrir boðsgesti og blaðamenn hátíðarinnar.

"Það er okkur mikil ánægja að koma að svona verkefni og við höfum undanfarin ár styrkt hátíðina með sambærilegum hætti. Markmið okkar er að sýna þessum aðilum íslenskt landslag og vonandi vekja með því áhuga kvikmyndaiðnaðarins á að taka kvikmyndir og eða auglýsingar á Íslandi. Það er frábær landkynning sem lifir vel og lengi" segir Þórir Garðarsson sölu- og markaðstjóri Iceland Excursions. Að  sögn Hrannar Marinósdóttur kvikmyndahátíðarstjóra skiptir samtarf  við ferðaþjónustufyrirtæki á borð við Iceland Excursions einnig miklu máli fyrir hátíðina. Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samningsins.