Samráð um öryggi við Sólheimajökul
Ferðamálastofa boðaði þann 16. júlí til samráðsfundar um öryggismál við Sólheimajökul í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, landeigendur og opinbera aðila. Tilefni fundarins voru hraðar breytingar á aðstæðum við jökulinn og þörf á að fara sameiginlega yfir stöðuna og ræða hvernig best verði tryggt áfram hátt öryggisstig á svæðinu. Á fundinum voru um 40 þátttakendur, bæði á staðnum og í fjarfundi.
Breytingar vegna hopunar jökulsins
Á fundinum var farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á svæðinu vegna hopunar jökulsins, meðal annars breytingar á aðkomuleiðum, aukið grjóthrun og aðrar náttúrulegar breytingar sem kalla á stöðugt endurmat á áhættu. Almenn samstaða var um að jöklagöngur muni ávallt fela í sér ákveðna áhættu og því sé lykilatriði að byggja á faglegu áhættumati, reynslu leiðsögumanna og nánu samstarfi allra þeirra sem koma að starfsemi á svæðinu.
Mögulegar mótvægisaðgerðir
Rætt var um ýmsar mögulegar mótvægisaðgerðir til skemmri og lengri tíma. Þar á meðal voru lagfæringar á gönguleið að jöklinum, endurskoðun á stærð ferðahópa á áhættusamari köflum, aukið upplýsingaflæði milli hagaðila og áframhaldandi vöktun á breytingum á svæðinu. Einnig voru ræddar mögulegar langtímalausnir sem krefjast frekari skoðunar og undirbúnings.
Vilji til að efla samstarf áfram
Eitt helsta niðurstaða fundarins var vilji allra aðila til að efla áfram samstarf og koma á reglulegum samráðsvettvangi um öryggismál við Sólheimajökul, að fyrirmynd fagráðs innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Jafnframt verður unnið áfram að daglegri vöktun á aðstæðum, skráningu atvika og miðlun upplýsinga milli hagaðila til að styðja við örugga og ábyrga starfsemi á svæðinu.
Ferðamálastofa þakkar öllum þátttakendum fyrir góða þátttöku, faglega umræðu og þann samstarfsvilja sem einkenndi fundinn. Öryggi ferðamanna byggir á öflugu samstarfi, samræmdri upplýsingagjöf og stöðugu mati á breyttum aðstæðum og verður sú vinna áfram í forgangi.
Aðilar hvattir til að yfirfara öryggisáætlanir
Ferðamálastofa mun einnig í framhaldinu senda póst á leyfishafa og hvetja þá sem bjóða upp á jöklaferðir á Sólheimajökli til að fara yfir og uppfæra öryggisáætlanir sínar þannig að þær endurspegli núverandi aðstæður á svæðinu. Sérstaklega er mikilvægt að endurskoða áhættumat, leiðarval, verklagsreglur, viðmið um framkvæmd ferða og viðbragðsáætlanir með hliðsjón af þeim breytingum sem orðið hafa. Jafnframt er mikilvægt að tryggja að allir leiðsögumenn og aðrir starfsmenn sem koma að framkvæmd ferða séu upplýstir um breytingarnar og starfi í samræmi við uppfærðar öryggisáætlanir.
Ef spurningar vakna er leyfishöfum velkomið að hafa samband við Ferðamálastofu með því að senda tölvupóst á oryggi@ferdamalastofa.is