Fara í efni

SAMIK auglýsir eftir umsóknum um styrki

SAMIK, sem er samstarfsvettvangur Íslendinga og Grænlendinga á sviði ferðamála, hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna sem aukið geta samstarf landanna á sviði ferðaþjónustu og skyldra verkefna.

Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heildarkostnaði viðkomandi verkefnis.

Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu - merktar SAMIK - fyrir 10. febrúar nk. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýsingar þurfa að vera á dönsku eða ensku.

Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætlun þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verkefnið og tilgang þess.

Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun styrkjanna liggi fyrir í lok febrúar.

Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkomandi verkefni er lokið.

Eldri umsóknir er nauðsynlegt að endurnýja.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson,
stjórnarmaður SAMIK í síma 553 9799.

SAMIK
Samgönguráðuneytið
Hafnarhúsið v. Tryggvagötu
150 Reykjavík
www.samgonguraduneyti.is