Fara í efni

SAMIK auglýsir eftir umsóknum um styrki

Ísland kynnt sem áfangastaður fyrir kínverska ferðamenn
Ísland kynnt sem áfangastaður fyrir kínverska ferðamenn

SAMIK, samstarf Íslands og Grænlands um ferðamál, auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til verkefna sem aukið geta samstarf Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu og skyldra verkefna. Styrkirnir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði viðkomandi verkefnis.

Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu - merktar SAMIK - fyrir 9. maí nk. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýsingar þurfa að vera á dönsku eða ensku. Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætlun þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verkefnið og tilgang þess. Sérstaklega er bent á að nauðsynlegt er að endurnýja eldri umsóknir.

Stefnt er á að ákvörðun um úthlutun styrkjanna liggi fyrir í byrjun júní. Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkomandi verkefni er lokið.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson,
stjórnarmaður SAMIK í síma 553 9799.

SAMIK
Samgönguráðuneytinu
Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu
150 Reykjavík
Heimasíða samgönguráðuneytisins